Listi Kópavogsbúa
  • Velkomin
  • Um okkur
  • Markmið
  • Myndir
  • Hafðu samband
  • Greinar
  • Facebook
  • Kosningar 2010
Hringlandaháttur bæjarstjórnar í opnunartíma sundlauga. 05/28/2010
1 Comment
 
Ég á ekki til orð yfir hringlandahætti bæjarstjórnar Kópavogs vegna opnunartíma sundlauga bæjarins. Fyrst var fólki sagt upp vegna sparnaðar,  því lækka þurfti launin hjá starfsmönnum, því  var sparnaðurinn og alltaf er byrjað á þeim sem lægstu launin hafa.  Hefði ekki verið nær að lækka laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna? Nokkrir ágætir starfsmenn hættu vegna þess að þeir höfðu einfaldlega ekki efni á að vera í þessu starfi lengur.

Eldri borgarar sem voru með frítt í sund þurfa nú að greiða gjald í sund og líka fyrir kaffisopann, en í öðrum bæjarfélögum er frítt fyrir sundið fyrir þennan aldurshóp. Margir voru óánægðir en ekkert gerðist fyrr en nú „korter í kosningar“. Flokkarnir í bæjarstjórn, þ.e. Sjálfstæðis, Framsókn og Samfylking samþykktu að að lengja aftur opnunartímann og þeir halda að Kópavogsbúar séu svo vitlausir að sjá ekki hvað er í gangi. Það átti aldrei að stytta tímann,vegna þess að allir vita að það að fara í sund er mjög gott fyrir andlega og líkamlega heilsu og ég tala nú ekki um skemmtunina fyrir alla fjölskylduna.

Svo eru þessir snillingar „bæjarstjórnarmenn“ búnir að ýta út ágætis starfsfólki með þessum hringlandahætti. Ég vona að þið Kópavogsbúar gefið ekki þessum gömlu flokkum ykkar atkvæði því þeir lofa og lofa fyrir kosningar og hvað gerist svo á eftir? Við þurfum virkilega að gefa þessum gömlu flokkum frí og kjósa nýtt fólk.

Y-Listi Kópavogsbúa lofar engu nema að vera ekki með svona hringlandahátt, því við munum taka á hverju máli fyrir sig með festu og reyna að leysa þau af bestu getu.

 Skoðið heimasíðuna okkar: www. listikopavogsbua.weebly.com

Ásdís Ólafsdóttir.
Skipar 12. Sæti á  Y-Lista Kópavogsbúa

1 Comment
 
Kosningaloforð..... 05/28/2010
7 Comments
 
Þegar þetta er skrifað eru nokkrir dagar í kosningar og inn um lúguna kemur ofgnótt af bæklingum og blöðum frá fjórflokkunum. Þar sem ég er nýr í þessu framboðsbrölti velti ég því fyrir mér hvort bæklingar, blöð, mannháar myndir af frambjóðendum í gluggum, fánar, blöðrur, rósir og hvað eina, veki upp áhuga hins almenna kjósanda til þess að taka þátt í kosningasirkusnum.

Kosningaloforð eru fyndin fyrirbæri. Margt er ritað og sagt. Hamrað er á klisjum sem hafa heyrst áður , klisjur sem eru orðnar þreyttar en varan skal seld hvað sem það kostar.  Í Kópavogi er tekist hart á um málefnin, eða hvað? Við lestur greina og bæklinga má finna margt skemmtilegt:

-        það er óþarfi að bjóða upp á sykur út í AB mjólkina og á hafragrautinn

-        það er óhollt að bjóða upp á unnar matvörur í ríkum mæli

-        bjóða upp á fjölbreyttari afþreyingu í íþróttahúsunum m.a lestraraðstöðu

-        “meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó”

Eins og svo oft áður er kosningaloforðum pakkað inn í fallegan gjafapappír sem við opnun, breytist í rusl. Við sjáum frambjóðendur tjá sig, munnurinn hreyfist en skrjáfið er mikið því orðin eru líka pökkuð inn í sellófan. Eftir kosningar fara þessi loforð beint undir stól því treyst er á að við höfum ekki lesið neitt af því sem var verið að bjóða upp á.

Má skilja kosningar sem svo að atvinnustjórnmálamenn láta dæluna ganga, segja sem mest og nota flottustu orðin sem þau kunna til að slá ryki í augu kjósenda? Mér finnst merkilegt að flestir skilja ekki það sem atvinnustjórnmálamennirnir segja.

Við á Y – Lista Kópavogsbúa viljum skilja hvað er í gangi í bæjarfélaginu okkar. Við viljum skilja afhverju það sé vegið að bæjarfulltrúum og starfsmönnum bæjarins þegar óskað er eftir stjórnsýsluúttekt. Afhverju er það ósvífni? Ég á erfitt með að trúa því að hinir frábæru starfsmenn Kópavogs t.d. áhaldahúss og sundlauga, hafi nokkuð að gera með hin fjölmörgu stjórnsýslulegu vafaatriði sem hafa komið fyrir sjónir okkar íbúanna í bænum.

Listi Kópavogsbúa lofar engu en við viljum að hlustað sé á íbúa bæjarfélagsins.

Á heimasíðu okkar er eftirfarandi:

“Við erum til vegna ykkar - við trúum ekki á flokkakerfi og röðunarreglur þeirra. Við viljum fólk umfram flokka og hvetjum íbúa í Kópavogi til að styðja okkur.  Ef þú spyrð okkur hverju við ætlum að lofa fyrir kosningarnar er líklegt að við svörum þér "við lofum að vinna sem best að málefnum Kópavogsbúa, sjá til þess að stjórnun bæjarins verði fagleg og áreiðanleg, fara vel með fjármagn bæjarins og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra". 

Ég hvet Kópavogsbúa til að styðja Y – Lista Kópavogsbúa

Héðinn Sveinbjörnsson

Höfundur skipar 6. sæti á Y – Lista Kópavogsbúa 

7 Comments
 
Æ sé gjöf að gjalda 05/28/2010
1 Comment
 
Kæru nágrannar í Kópavogi.  Nú er komið að því að við kjósum fulltrúa okkar í bæjarstjórn til næstu fjögurra ára.   Það er svolítið langur tími ef menn gæta ekki hagsmuna okkar sem skyldi.  Ég er búin að búa hér í Kópavogi frá árinu 1979 og finnst þetta dásamlegur staður til að búa á.  Það er eitt að fá völd og annað að kunna að fara með þau.  Ég tel að núverandi meirihluti í bæjarstjórn hafi fjarlægst fókið í bænum og sé ekki að gæta hagsmuna þess sem skyldi.  Eiginhagsmunir og hagsmunagæsla fólksins í bænum eiga ekki saman.  Við þurfum að taka til hér í Kópavogi eins og í þjóðfélaginu öllu.  Við fulltrúar á Y-Lista Kópavogsbúa bjóðum okkur fram til þjónustu fyrir Kópavogsbúa af heilum hug og án eiginhagsmuna- eða vina pots.

Til að hafa það alveg á hreinu, þá erum við venjulegir Kópavogsbúar og þiggjum ekki styrki frá neinum hagsmunaaðilum.  Það er reyndar spurning hvort við fáum styrk eins og hin framboðin frá bænum til að gefa út bækling.  Við lítum þannig á að ef við þiggjum styrki frá hagsmunaaðilum þá kunnum við að standa í skuld við viðkomandi og það geti mögulega haft áhrif á óhæði okkar þegar við eigum að standa vörð um hagsmuni bæjarbúa.  Eins og segir í máltækinu „Æ sér gjöf til gjalda“.  Við byggjum  því að eigin fjármagni og hugsanlegum styrk bæjarins til útgáfu bæklings.  Við höfum ekki það fjármagn sem gömlu flokkarnir virðast hafa til að koma sér á  framfæri.  Við byggjum á eigin styrk og vonum að bæjarbúar taki okkur vel og kjósi Y-lista Kópavogsbúa.



Ásdís Ólafsdóttir

1 Comment
 
Rauða spjaldið í Kópavog 05/28/2010
1 Comment
 
Kópavogsbúar góðir,  gefið nýju fólki  tækifæri  til að koma að stjórnun bæjarins næstu fjögur árin.  Sagt er að nýir vendir sópi best og er ekki vanþörf á tiltekt.  Á Y-Lista Kópavogsbúa er valinn hópur af góðu fjölskyldufólki  sem lætur sig varða hag fólksins sem byggir þennan bæ og veit vel hvar skóinn kreppir. Það er ekkert eðlilegra en að endurnýjun eigi sér stað því þeir sem hafa haldið um stjórnartaumana   þurfa einhvern tíma að láta af völdum enda búnir að sitja í um 20 ár.  Þeir eru einfaldlega búnir að sitja alltof lengi og láta oft eins og þeir eigi stólana sem þeir sitja í og allt kerfið.  Þeir  hafa fjarlægst íbúana og lifa í sínum eigin heimi.  

Nú eru þeir komnir með gula spjaldið og þið kjósendur góðir sjáið um að þeir fái það rauða.  Það hefur nefnilega sýnt sig að þeir sem sitja of lengi í bæjarstjórnum og öðrum stjórnum gleymi gjarnan hugsjónum sem þeir höfðu í byrjun.   

Við á Y-Lista  Kópavogsbúa viljum ráða faglegan bæjarstjóra sem er ekki á framboðslista og getur stjórnað 30 þúsund manna fyrirtæki sem Kópavogur er. Gömlu flokkarnir keppast við að setja fram bæjarstjóraefni úr sínum flokkum og allir eru þeir búnir að sitja alltof lengi í pólitíkinni. Við á Y-Lista Kópavogsbúa ætlum ekki að sitja lengur en tvö kjörtímabil fáum við kosningu frá ykkur. Við ætlum líka að fara eftir siðareglum Kópavogsbæjar sem eru góðar en gleymst hefur í of mörgum tilvikum að fara eftir þeim.  Þá erum við ekki með langan loforðalista eins og gömlu flokkarnir því við ætlum að taka á málunum jafnt og þétt  og á sem sanngjarnastan hátt fyrir bæjarbúa.  

Nú er lag kjósendur góðir, sendið gömlu flokkana í frí næstu árin því þeir eru orðnir örþreyttir. Ekki sitja heima, komið og kjósið Y-Lista Kópavogsbúa.  Það er auðvelt að muna listabókstafinn því þetta er gamla bílnúmerið í Kópavogi.  Við erum ekki flokkur, bara venjulegt fólk sem viljum bæjarfélaginu vel.

1 Comment
 
Viðtöl á MBL.IS við oddvita flokkanna í Kópavogi 05/25/2010
1 Comment
 
http://mbl.is/mm/frettir/kosningar/2010/05/25/betri_stjornsysla_og_ny_storf/ Kíkið á þetta.
1 Comment
 
Rannveig í bítið 05/17/2010
1 Comment
 
Rannveig Ásgeirsdóttir var í þættinum Ísland í bítið í dag 17. maí. Hægt er að hlusta á viðtalið á slóðinni hér á eftir. Viðtalið byrjar á uþb. 30 mínútu. http://bylgjan.visir.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=54924 
1 Comment
 
Viðtal við Rannveigu í Fréttablaðinu 12. maí 05/12/2010
1 Comment
 
Siðbót í málum bæjarins

"Við erum fyrst og fremst að bjóða okkur fram vegna þess að við teljum að samfélagið okkar sé brotið," segir Rannveig Ásgeirsdóttir, oddviti Y-lista Kópavogsbúa. "Við viljum gefa fólki raunhæfan kost til að kjósa einstaklinga sem bera samfélagið fyrir brjósti en ekki flokka og sérhagsmunahópa. Langstærstu málin eru siðbót í stjórnmálum, siðbót í málum bæjarins."

Rannveig segir að stefnumálin séu ekki mörg en skýr: "Við viljum koma á faglegum vinnubrögðum í málefnum bæjarins og að farið sé eftir þeim siðareglum sem bærinn hefur sett sér." Næsta bæjarstjóra eigi að ráða með faglegum hætti en ekki sækja hann í biðröð hjá einhverjum flokkanna. "Við leggjum til að bæjarfulltrúar sitji í mesta lagi tvö kjörtímabil," segir Rannveig og vill að bæjarbúar fái reglubundnar upplýsingar um gang mála í sveitarfélaginu og komið verði á hverfaráðum til að tryggja áhrif bæjarbúa. "Við viljum opna bæjarfélagið og gefa bæjarbúum færi á að koma sínum málum á framfæri."
1 Comment
 

    Author

    Fólkið á Lista Kópavogsbúa

    Archives

    May 2010

    Categories

    All

    RSS Feed


Create a free website with Weebly