Listi Kópavogsbúa
  • Velkomin
  • Um okkur
  • Markmið
  • Myndir
  • Hafðu samband
  • Greinar
  • Facebook
  • Kosningar 2010

1. Rannveig Ásgeirsdóttir - fædd 1967

Picture
Rannveig Ásgeirsdóttir. Ég er fædd 8. janúar 1967. Fluttist í nýbyggingarhverfið í Grundunum 1974 og lék mér í þúfunum í Fossvogsdalnum. Bý í mínu gamla hverfi enn með eiginmanni Karli Jóhanni Jónssyni, myndlistarmanni, þremur börnum á aldrinum 8-18 ára, einum hundi og gullfisk.   Ég er stúdent frá MH, er löggiltur læknaritari og stundaði nám í HÍ í íslensku og lauk viðskiptanámi fyrir konur hjá Impru. Ég rek fyrirtækið Ritara ehf . Síðastliðin 17 ár hef ég unnið í foreldrasamstarfi frá leikskóla og upp úr. Ég var formaður í foreldrafélagi nú síðast í Snælandsskóla, sat fjölmörg ár í stjórn SAMKÓP, sat einnig í stjórn Heimilis og skóla og skólanefnd Kópavogs sem áheyrnarfulltrúi foreldra í Kópavogi.

2. Guðmundur Freyr Sveinsson - fæddur 1977

Picture
Guðmundur Freyr Sveinsson. Ég fæddist á Húsavík 1977 en flutti 10 ára gamall til Akureyrar. Á Akureyri bjó ég þar til ég útskrifaðist úr Menntaskólanum á Akureyri en eftir það lá leiðin til Reykavíkur í Háskóla Íslands. Ég er með BA próf í stjórnmálafræði, master í opinberri stjórnsýslu MPA og kennsluréttindi frá KHÍ. Ég starfa sem aðstoðarskólastjóri í Vatnsendaskóla í Kópavogi.
Ég er giftur Guðrúnu Birnu Kjartansdóttur náms- og starfsráðjafa og við búum á Kársnesinu ásamt sonum okkar sem eru 3 og 7 ára.


3. Una Björg Einarsdóttir - fædd 1977 

Picture
Una Björg Einarsdóttir. Ég er fædd 25. febrúar 1977 og ólst upp í Þorlákshöfn. Ég gekk í Menntaskólann að Laugarvatni og útskrifaðist þaðan árið 1997 en fluttist til Reykjavíkur árið 1998 til að stunda háskólanám. Ég er með BA próf í stjórnmálafræði, MA gráðu í mannauðsstjórnun og starfa sem verkefnastjóri hjá Sambandi íslenskra sparisjóða.  Ég er ekkja og bý ásamt Örnu Eiri (20 mánaða) dóttur minni  í Álfkonuhvarfinu þar sem við unum okkur vel.


4. Hreiðar Oddsson - fæddur 1976 

Picture
Hreiðar Oddsson. Ég er fæddur 1. nóvember 1976, ólst upp í Fossvoginum, Kópavogsmegin og gekk í Snælandsskóla og því næst í MK þar sem ég útskrifaðist 1998. Ég er með B.ed próf og kenni smíðar í Digranesskóla. Ég hef verið virkur í skátahreyfingunni og starfað með Skátafélaginu Kópum í Kópavogi frá 1987 og hef verið forstöðumaður Sumarbúða skáta á Úlfljótsvatni frá 2004. Ég er í sambúð með Evu Katrínu Kjartansdóttur og við eigum 3 börn og búum á Álfhólsveginum.

6. Héðinn Sveinbjörnsson - fæddur 1967

Picture
Héðinn Sveinbjörnsson. Ég er fæddur í vesturbæ Kópavogs 22. ágúst 1967. Var  í Kársnes- og Þinghólsskóla á árunum 1973 – 1983. Tók verslunarpróf í Verslunarskóla Íslands 1985 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi 1987. Flutti til Danmerkur 1993 og útskrifaðist sem uppeldisráðgjafi (pædagog) 1997.  Hef unnið á frístundaheimili, sambýli, leikskóla, í vinnuskóla Kópavogs, félagsmiðstöðvunum Jemen, Þebu og Bústöðum. Hóf störf sem rekstarstjóri í Frístundamiðstöðinni Frostaskjóli í apríl 2008. Er giftur Sigríði Tryggvadóttur, á tvíburana Aron Yngva og Freyju Ósk 9 ára og búum við í vesturbæ Kópavogs.

11. Vilhjálmur Einarsson - fæddur 1947

Picture
Vilhjálmur Einarsson. Ég er fæddur 6. apríl 1947 í Reykjavík . Fluttist í Kópavog 1952 og hef átt heima í Birkigrund frá upphafi, áður við Nýbýlaveg. Ég er gagnfræðingur frá Gagnfræðiskólanum í Kópavogi 1964 og var í fyrsta árgangi skólans. Ég lauk sveinsprófi í húsasmíði 1970 og námi sem löggildur fasteignasali 1989. Ég var stjórnarmaður og formaður í stjórn Félagsheimilis Kópavogs og Kópavogsbíós frá 1970 til 1978, formaður Slysavarnardeildar Kópavogs og einn af stofnendum björgunarsveitarinnar Stefnis í Kópavogi. Ég stofnaði Fasteignasöluna Eignaborg í Kópavogi 1978 og vinn þar í dag. Ég er giftur Sigurbjörgu Magnúsdóttur og eigum við 4 uppkomnar dætur.

7. Eiríkur Ólafsson - fæddur 1976

Picture
Eiríkur Ólafsson.  Ég fæddist árið 1976 og ólst upp í Hafnarfirði.   Ég bjó í Hafnarfirði til ársins 2002 þegar ég flutti til Reykjavíkur.  Flutti síðan til Kópavogs á síðasti ári og líður vel í þessum fallega bæ.  Ég er með BA próf í stjórnmálafræði, master í evrópufræðum og alþjóðlegum samskiptum, að auki hef ég  lokið kennsluréttindum frá KHÍ.  Ég starfa sem kennari við Digranessskóla í Kópavogi. Ég er í sambúð með Soffíu Dagbjörtu Jónsdóttur, sem starfar sem deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg.  Við eigum son, Tóbías Erik, sem er eins árs gamall.


Create a free website with Weebly